Hamfaramyndband af skriðufalli

Eitt versta slys af mannavöldum varð í Shenzhen, Kína fyrir nokkrum dögum þegar gríðarlegt magn af jarðvegi flæddi yfir fjölda bygginga og fólk. Tugir bygginga hurfu undir þykkt lag af jarðvegi.

Eftir því sem fram hefur komið á fréttamiðlum er enn verið að finna fólk á lífi þremur sólarhringum eftir hamfarirnar.

Margir eru látnir, en framkvæmdir í fjalli skammt frá eru taldar hafa orsakað jarðvegsskriðuna.

Sjá myndband hér en rétt er að vara viðkvæmt fólk við myndunum.