Hamborgarfundur g20

Þessi fundur ríkisoddvita tuttugu helstu iðnríkja heims markar tæpast tímamót. Þó kunna einkafundur stöku ríkisoddvita í hliðaherbergjum leiða til aukins skilnings á ólíkum sjónarmiðum. Vera má að forsetar Bandaríkjanna og Kína sammælist um aðferðir til að hemja Norður-Kóreu. Það er þó ekki sennilegt. Þá er líklegt að forsetar Bandaríkjanna og Rússlands skiptist að skoðunum um Úkraínu og um Sýrland.

Þessa stundina eru fundir í Hamborg þar sem embættismenn fara yfir uppkast að lokayfirlýsingu þessa G20 samráðasfundar. Það er vandasamt verk. Líkast til verða læsilegustu málsgreina lokayfirlýsingarinnar um loftslagsmál og um verslun og viðskipti og fjárfestingar ásamt málsgrein um ofuframleiðslu á stáli og áli og undiboðum þeim markaði þar sem stál og ál frá Kína seljast undir framleiðslukostnaði.   

Fréttaskýrendur telja að Donald J. Trump forseti Bandaríkanna muni eins og áður ekki vera í stakk búinn til að gefa nokkuð eftir í loftslagsmálum. Angela Merkel kanslari Þýsklands er nú meira um vert að horfa til sambandsþings kosninganna í Þýsklandi í september nk. en að þrátta við aðra ríkisoddvita um þau mál sem henni eru hugleikin.  

rtá