Hamborgara-tommi mætir í mannamál

Það er akkúrat enginn skortur á umræðuefni í Mannamáli kvöldsins þegar Tómas Andrés Downey Tómasson mætir í gráa stólinn gegnt Sigmundi Erni á níunda tímanum á Hringbraut, enda gesturinn óhræddur að segja sögu sína af einlægni og hispursleysi.

Hann er kanabarn sem bæði faðir og móðir yfirgáfu og raunar sá hann aldrei pabba sinn þótt hann hafi verið í námunda við hann á Flórídaárum sínum síðar á lífsleiðinni, en hvorugur vissi þá af hinum.

Hann ólst upp hjá afa og ömmu og þótti óstýrilátur, enda fór það svo að hann skaut úr sér augað á táningsaldri, nokkuð sem hann hafði í sjálfu sér óskað sér, svo undarlega sem það hljómar.

Hann fór í veitingabransann svo hann gæti drukkið í vinnunni, vildi helst vera þjónn en eigendur veitingahúsanna vildu frekar geyma hann á bak við þilið - og þar með byrjaði hann í kokknum.

Hann seldi þúsund hamborgara á dag þegar fyrsti Tommahamborgarastaðurinn varð til í byrjun níunda áratugarins, en svo fylgdu í kjölfarið Hard Rock Café, Amma Lú og Hótel Borg.

Loks stofnaði hann Hamborgarabúllu Tómasar af því hann var barasta orðinn blankur á miðjum aldri, en velgengin hefur verið með ólíkindum - og það er nú ekki eins og honum leiðist sú sannreynd að David Beckham er fastagestur hjá honum á búllunni í Lundúnum.

Mannamál eru frumsýnd klukkan 20:30 í kvöld.