Hámarksúttekt níu þúsund krónur á dag

Bankar í Grikklandi taka til starfa á ný á morgun, mánudag, eftir að hafa verið lokaðir frá 29. júní. Nýjar reglur heimila Grikkjum að taka út að hámarki 420 evrur á viku, eða rúmlega 60 þúsund krónur - en hámarksúttekt hvers og eins verður um níu þúsund krónur á dag, eða 60 evrur. 

Bankar í Grikklandi hafa verið lokaðir í þrjár vikur. Stjórnvöld í Grikklandi staðfestu í gær að grískir bankar myndu opna á ný í upphafi nýrrar vinnuviku, en gjaldeyrishöft verði þó áfram við lýði. Samkvæmt mbl.is hafa lokanir bankanna haft gífurlegar afleiðingar fyrir gríska hagkerfið sem orðið hefur af þremur milljörðum sökum aðstæðna í landinu.