Hallmar Sigurðsson, einn kunnasti leikhúsmaður þjóðarinnar er látinn á 64. aldursári, en á starfsævi sinni markaði hann djúp spor í leikhússögu landsmanna.
Hallmar lést á Landsspítalanum í gær, en hann var lengi leikstjóri hjá Útvarpsleikhúsinu, Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur, Leikfélagi Akureyrar, Leikfélagi Húsavíkur og við Listaháskóla Íslands. Hann var leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur 1987 til 1991.
Síðustu árin var Hallmar framkvæmdastjóri Arkitektafélags Íslands, starfaði sjálfstætt við menningarráðgjöf og vann að listmálun og skrifum. Eftirlifandi eiginkona Hallmars er Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt, en þau eiga eina uppkomna dóttur og tvö barnabörn.