Enn flytja landsmenn langtum meira inn af vörum en sem nemur útflutningi þeirra eins og sést á nýjum tölum Hagstofu Íslands um hallann á vöruviðskiptum Íslendinga. Hallinn nemur nú 178 milljörðum króna.
Á vef Hagstofunnar segir í dag: \"Í desember voru fluttar út vörur fyrir 43,1 milljarð króna og inn fyrir 69,6 milljarða fob (73,8 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um tæpa 26,6 milljarða króna. Í desember 2016 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 7,9 milljarða á gengi hvors árs.
Árið 2017 voru fluttar út vörur fyrir 517,6 milljarða króna en inn fyrir 695,9 milljarða fob (741,2 milljarð króna cif). Því var halli á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 178,3 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti (161,9 milljarðar án skipa og flugvéla). Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 108,2 milljarða (79,9 milljarðar án skipa og flugvéla) á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn janúar-desember 2017 var því 70,1 milljarði króna (81,9 milljarðar án skipa og flugvéla) hærri en á sama tíma árið áður.\"