Hallgrímur vill sjá borgarstjórnarmeirihlutann í ríkisstjórn: „Mér opnast nýr heimur“

Rithöfundurinn og samfélagsrýnirinn Hallgrímur Helgason öðlaðist nýja sýn á lífið þegar bílinn hans bilaði. Hann segir á Facebook að hann hafi fengið lánað rafhjól hjá tengdó og sé nú 18 mínútur í vinnuna í stað 12 á bílnum.

„Þessar sex aukamínútur hef ég til að velta borginni og lífinu fyrir mér, dásama alla þessa hjólastíga og sakna þeirra svo líka þegar ég neyðist til að hjóla á brúnahvössum gangstéttum. En mikið er nú gott að við skulum hafa haft þessa borgarstjórn undanfarin ár. Munurinn á henni og hinum valkostinum er svo mikið skýr, stefnubreytingin áþreifanleg enn í dag. Væri ekki gaman að fá líka þannig ríkisstjórn? Svona framfara- og framkvæmdastjórn með skynsemi og lýðvísindi að leiðarljósi, vinstri og græna í alvörunni.“

Ummæli Hallgríms hafa fallið í misgóðan jarðveg. Gunnar Smári Egilsson sósíalisti segir: „Tja, sama stefna en fleiri hjólastígar? Veit ekki. Hljómar eins og það sem Daninn kallaði þakgarða-sósíalismi. Kannski er til eitthvað sem heitir hjólastíga-sósíalismi. Láglaunastefna, útvistun, einkavæðing, markaðshyggja og svo nokkrir hjólastígar.“

Margrét Tryggvadóttir, fyrrverandi þingmaður, segir rafhjól vera best: „Ég er 10 mínútur á skrifstofuna á bíl í engri umferð en 20 heim ef ég er á háannatíma. Á rafhjóli er ég 14-15 mínútur en á venjulegu hjóli 17-20 eftir veðri, vindum og umferðarljósum.“

Hallgrímur tekur undir þetta og segir: „Mér opnast nýr heimur. Er smám saman að skilja þessa stígavæðingu, þéttistefnu, öll þessi grænu skref. En maður verður að passa sig að fara hægt gegnum miðborgina og túristana.“