Hallgrímur sveinsson er látinn

Hall­grím­ur Sveins­son, bóka­út­gef­andi og fv. skóla­stjóri á Þing­eyri og staðar­hald­ari á Hrafns­eyri, varð bráðkvadd­ur á heim­ili sínu sunnu­dag­inn 16. fe­brú­ar. Hann var á átttugasta ald­ursári, fædd­ur í Reykja­vík 28. júní 1940. Hallgrímur stjórnaði Vestfirska forlaginu og vöku margar bækur mikla athygli en bókartitlarnir voru orðnir a.m.k. 300 á rúm­um 25 árum. Vinsælustu bækurnar voru Vestfirskar gamansögur en þar voru rifjaðar upp ýmsar gamansögur fyrir vestan. Þá skrifaði hann fjölda greina í Morgunblaðið og á Þingeyrarvefinn.

\"\"Hall­grím­ur lauk kenn­ara­prófi vorið 1961 og kenndi fyrst við heima­vist­ar­skól­ann á Jaðri við Reykja­vík og var síðan for­stöðumaður vistheim­il­is­ins í Breiðuvík í tvö ár. Skrifaði Hallgrímur bók um hið umdeilda vistheimili og hljómaði kynningartexti fyrir verkið á eftirfarandi hátt:

„Á flestum málum eru þó tvær eða fleiri hliðar og á það einnig við um Breiðavíkurmálið. Þó margir séu þegar búnir að dæma í því máli, vill Vestfirska forlagið samt leggja sitt litla lóð  á vogarskálarnar til að rifja upp fyrir fólki að á hinu stóra vestfirska sveitaheimili í Breiðavík var ekki alltaf tómt svartnætti eða kuldi ríkjandi. Þar var oft þvert á móti mannúð og mildi, umhyggja og hlýja höfð að leiðarljósi.“

Í Morgunblaðinu segir:

„Hann var kenn­ari í Auðkúlu­hreppi og síðan í barna- og ung­linga­skól­an­um á Þing­eyri og skóla­stjóri þar um ára­bil. Þau hjón­in voru bænd­ur og staðar­hald­ar­ar á Hrafns­eyri við Arn­ar­fjörð, fæðing­arstað Jóns Sig­urðsson­ar for­seta, í rúm 40 ár og sáu um vörslu og um­hirðu staðar­ins fyr­ir hönd Hrafns­eyr­ar­nefnd­ar.

Hall­grím­ur gaf út fjölda bóka í nafni Vest­firska for­lags­ins, ekki síst með sög­um og fróðleik af Vest­fjörðum. Hans eig­in höf­und­ar­verk voru þar á meðal. Bókartitlarnir voru orðnir a.m.k. 300 á rúm­um 25 árum. Vann Hall­grím­ur að þessu verk­efni og áhuga­máli til dán­ar­dags. Hann ritaði einnig grein­ar í blöð, m.a. Morg­un­blaðið, og á Þing­eyr­ar­vef­inn, síðustu árin gjarn­an í sam­vinnu við fé­laga sína í „Þing­eyr­araka­demí­unni“.

Hall­grím­ur kenndi hand­knatt­leik í Reykja­vík og var virk­ur í fé­lags­mál­um fyr­ir vest­an. Sat meðal ann­ars í hrepps­nefnd Auðkúlu­hrepps og var odd­viti, hrepp­stjóri og sýslu­nefnd­armaður, sat í stjórn Kaup­fé­lags Dýrfirðinga og sókn­ar­nefnd.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Hall­gríms er Guðrún Steinþórs­dótt­ir frá Brekku í Dýraf­irði. Hún var með sauðfjár­bú­skap á Brekku í mörg ár og titlaði Hall­grím­ur sig þá „létta­dreng“ á Brekku.“