Hallgrímur horfði í augun á drengnum: „Hefur þolað svo margt“

„Þetta er hann Uhunoma Osayomore, ungur maður frá Nígeríu sem á að baki sex ótrúleg og hræðileg ár sem flóttamaður. Ég hitti hann í sumar þar sem hann sagði mér sögu sína dapur í bragði.“

Svona hefst frásögn Hallgríms Helgasonar, rithöfundar, sem berst nú fyrir því að Uhunoma verði ekki vísað úr landi. Segir Hallgrímur að Uhunoma sé fórnarlamb stífs og erfiðs kerfis á Íslandi þar sem máli hans er ekki lokið fyrir dómstólum.

Saga Uhunoma er átakanleg.

htLevkPhrMzUacs-800x450-noPad.jpg

„Árið 2016 flúði hann heimili sitt í Nígeríu, 16 ára gamall, eftir að faðir hans myrti móður hans og gekk daglega í skrokk á drengnum. Hann lenti á flækingi og endaði í höfuðborginni Lagos þar sem þrælasalar komust yfir hann og seldu hann mansali. Allt í einu var hann staddur í farangursrými rútu á leið úr landi,“ segir Hallgrímur.

„Sú ferð var mikil martröð eins og flestir flóttamenn vitna um. Líbýa var mesta helvítið, þar rakst hann um í 7 mánuði og mátti þola að horfa upp á góðgerðarkonu sína myrta, var haldið föngnum í fjárhúsi, var látinn túlka fyrir pyntingar á sínum eigin löndum og mátti svo þola ítrekað kynferðisofbeldi.“

Frásögn Uhunoma af ferðinni yfir MIðjarðarhaf var einnig átakanleg. „200 manns á flekaskútu þar sem þrengslin voru slík að hin minnsta hreyfing gat valdið því að þú lentir í sjónum. Fimm drukknuðu þannig á leiðinni. Við tóku 3 ár í flóttamannabúðum með enn frekari niðurlægingu og vonleysi, ofbeldi og kynferðisofbeldi.“

Hallgrímur horfði í augun á honum.

„Þessi drengur hefur þolað svo margt, og margt má lesa úr augum hans. Það var svo fyrir röð tilviljana sem hann endaði hér haustið 2019. Síðasta vetur mátti hann þola í kulda og tilfinningakulda í flóttamannabúðunum á Keili. Og allan tímann mátti hann búast við því að vera sendur burt, hvern dag, hverja stund, kvíðinn var orðinn svo rosalegur að hann var orðinn mjög illa haldinn, þegar gott fólk tók hann að sér hér í Reykjavík fyrir mikla miskunnsemi.“

Nú á að vísa Uhunoma úr landi. Biðlar Hallgrímur til almennings að sýns stuðning í verki og skrifa undir nýstofnaða undirskriftasöfnun: BJÖRGUM UHUNOMA!