Rithöfundurinn og málarinn Hallgrímur Helgason og rithöfundurinn og leikkonan Steinunn Jóhannesdóttir eru gestir Karls Ágústs Úlfssonar í þættinum Helginni á Hringbraut í kvöld og ræða málefni vikunnar og hvað helst er á döfinni í lífi beggja.
Þættir Karls Ágústs hafa verið fastir liðir á dagskrá Hringbrautar frá byrjun og eru frumsýndir klukkan 20.00 á föstudagskvöldum. Þar fær hann vanalega til sín tvo góða gesti sem eru vel læsir á íslenskt samfélag. Hallgrímur hefur auðvitað verið einn helsti rýnir þess um langt árabil, en hann var nýverið að opna sýningu á útlistaverkum í tilefni af Listahátíð. Steinunn gjörþekkir einnig þjóð sína eftir farsælan feril sem leikari, leikstjóri og leikskáld en hún sýnir um þessar mundir örlagasöguna um Hallgrím og Guðríði í Landnámssetrinu í Borgarnesi.
Og listina ber auðvitað á góma í þættinum, svo sem moskumálið í Feneyjum eins og nærri má geta. Hallgrímur segir af því tilefni að listin eigi að brjóta kirkjur fremur en að reisa þær.
Rétt er einnig að minna á inngangsorð Karls Ágústs í þættinum sem eru alltaf jafn meitluð en þar hlífir hann vanalega engu.