Bækurnar sem breyttu halldóri

Halldór Guðmundsson, forstjóri Hörpu, bókmenntafræðingur og rithöfundur settist við háborðið hjá Sigmundi Erni í lestrarhestaþættinum Bókin sem breytti mér á Hringbraut í gærkvöld með þrjá lykilhöfunda úr lífi sínu.

Halldór dró upp úr pússi sínu þær þrjár bækur sem hafa haft mest áhrif á hann allt frá barnæsku, en þar á meðal er þýska barna- og unglingabókin Winnetou eftir Karl May sem opnaði veröld bókanna fyrir Halldóri þegar hann var búsettur með fjölskyldu sinni í Þýskalandi á barnsaldri. Það kemur ef til vill ekki á óvart að hann valdi eina af sögum Halldórs Kiljan Laxness í flokk þessara þriggja bóka - og það reyndist vera Vefarinn mikli frá Kasmír sem Laxness skrifaði aðeins 23 ára að aldri úti á Ítalíu með einglyrni einum fata, eins og Hallddór orðaði í þættinum, en hann hefur rannsakað skrif nóbelskáldsins í þaula og gefið út rómaða ævisögu um líf þess og starf. Þriðja bókin sem Halldór ræddi í þættinum var Ódysseifur írska skáldsins James Joyce sem bylti frásagnarhefðinni á sínum tíma, raunar rétt eins og Halldór Kiljan Laxness gerði í íslenskri bókmenntasögu á fyrri hluta síðustu aldar.

Þá stóðst Halldór ekki mátið í lok þáttarins og ræddi aðeins um bókina sem hann sjálfur er að gefa út um þetta leyti, en hún fjallar um pólsku ömmu hans, Mamúsku sem hann nefnir svo, en þá konu kynntist hann gjörla á fjölda ferða sinna á bókamessuna í Frankfurt á árum áður þegar hann sinnti bókaútgáfu af eftirtektarverðum metnaði.  

Þáttinn má sjá hér.