Halldór segir skrif davíðs koma upp um sálarástand hans: „bréfaskriftir geta verið hættulegar“

„Bréfaskriftir geta verið hættulegar af því þær koma upp um mann, - lýsa því í hvaða sálarástandi maður er þá stundina. Og auðvitað hefnir það sín, ef illa liggur á manni, - þá miklar maður hlutina fyrir sér og freistast til að fara ekki rétt með. Faðir minn kenndi mér að senda ekki slík bréf frá mér fyrr en að morgni, sem var holl ráðlegging og olli því að þau voru aldrei send.“ 

Á þessum orðum hefst aðsend grein Halldórs Blöndal, fyrrverandi samgönguráðherra, í Morgunblaðinu í dag. Þar beinir hann orðum sínum til Davíðs Oddssonar, fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi ritstjóra Morgunblaðsins. Halldór og Davíð voru um langt skeið nánir samstarfsmenn þar sem Halldór var til að mynda ráðherra í ríkisstjórn Davíðs um níu ára skeið.

Davíð hefur sem kunnugt er farið mikinn í gagnrýni sinni í garð Sjálfstæðisflokksins að undanförnu, þar sem hann hefur til að mynda gert lítið úr 90 ára afmælisfögnuði flokksins, sagt flokksforystu vera að fjarlægjast kjósendur sína og gagnrýnt afstöðu flokksins til þriðja orkupakkans.

Halldór segir afmælishátíð Sjálfstæðisflokksins hafa verið mjög vel heppnaða en hefur á orði að margir hefðu viljað að gamlir formenn flokksins, Davíð og Þorsteinn Pálsson, létu sjá sig. Hann segist auk þess finna það glöggt að meðal Sjálfstæðismanna sé mikil ánægja yfir stöðu þjóðmála og forystu flokksins.

Halldór víkur máli sínu að aðsendri grein Jóns Hjaltasonar stjórnarformanns Háspennu, sem var stíluð á forystu Sjálfstæðisflokksins og birtist í Morgunblaðinu fyrir viku síðan, og hvernig Davíð hafi í síðasta Reykjavíkurbréfi sínu hyglt henni. „Í Reykjavíkurbréfi gerir þú orð Jóns Hjaltasonar að þínum. Það var ógætilegt og það hefðir þú ekki gert, ef betur hefði legið á þér. Í grein Jóns er mikið af rangfærslum og raunar bein ósannindi,“ segir Halldór.

Hann hrekur nokkrar af fullyrðingum Jóns: „Ég tek dæmi en af nógum er að taka. Jón skrifar til forystu Sjálfstæðisflokksins: Þið réðuð Má Guðmundsson sem seðlabankastjóra ekki einu sinni heldur tvisvar. Hið rétta er, að Már var ráðinn í júlí 2009 en þá var vinstri stjórn í landinu. Már var síðan endurráðinn eftir auglýsingu 2014 og skipaði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra í stöðuna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var þá forsætisráðherra og hafði um það að segja. Rétt er að rifja upp, að hann var formaður Framsóknarflokksins í byrjun árs 2009 þegar allur þingflokkur þess flokks greiddi atkvæði með því að breyta lögum um Seðlabankann til þess að losna við þá seðlabankastjóra sem þá voru. Einn þeirra varst þú, Davíð Oddsson.“

„Margt fellur mér illa í þessu þínu síðasta Reykjavíkurbréfi en verst þó, að þú skulir halda því fram að í þriðja orkupakkanum felist framsal á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins. Það er ekki fótur fyrir þessari fullyrðingu,“ segir Halldór og bendir að lokum á ómetanlegan þátt Davíðs í því að EES-samningurinn var samþykktur á sínum tíma:

„Og það er raunar athyglisvert, að þú skulir setja hana fram. Þjóðin á það þér að þakka, að samningar tókust um hið Evrópska efnahagssvæði og þú sannfærðir mig og aðra um, að sá samningur rúmaðist innan ákvæða stjórnarskrárinnar. Sömuleiðis fyrsti og annar orkupakkinn. Þar vannstu gott verk og þarft.“