Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að ráðast í 1,8 milljarða niðurskurð á útgjöldum borgarinnar strax á næsta ári, en fram kemur á fréttavef RÚV í morgun að minnihluti Sjálfstæðisflokksins hafi bókað þar að núverandi meirihluti ráði ekki við það grundvallarverkefni að stýra fjármálum borgarinnar: \"Það virðist vera - það hefur enginn bati orðið á rekstrinum og þau týna til óvænta hluti, eins og lífeyrisskuldbindingar. En þegar maður skoðar grunnreksturinn blasir við að reksturinn er alveg skelfilega slæmur,“ segir Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni við vefinn.
Fram kemur að skorið verður niður hjá sviðum borgarinnar, til að mynda hjá skóla-og frístundaráði um 670 milljónir, 412 milljónir á velferðarsviði og 325 milljónir í miðlægri þjónustu og Ráðhúsinu. Halldór segir þetta hafa öll einkenni flats niðurskurðar og vonar að ekki þurfi að grípa til uppsagna heldur að dregið verði úr endurráðningum - helst ætti að vera ráðningarbann.
Hann segist í samtali við vefinn telja að best hefði verið að fá einhvern annan en borgarstjóra til að stýra hagræðingarhópnum sem á að endurmeta fjármálastjórnina - einhvern utanaðkomandi: \"Stöðu hans vegna er eðlilegt út frá því að hann stýri þessu. En það hefur ekki gengið vel hjá meirihlutanum að stýra borginni til þess - þau hafa ekkert stýrt þessu. Þetta hefur einhvern veginn verið á sjálfstýringu og hún er vitlaust stillt.“