Hall­dór greind­ist með sér­stakt af­brigð­i af Co­vid: „Þett­a er auð­vit­að rík­is­leynd­ar­mál“

Rit­höfundurinn Hall­dór Armand greindist með Co­vid nú á dögunum. Hall­dóri leiðist þó greini­lega ekki í ein­angruninni og sló hann á létta strengi í mynd­bandi sem hann birti á Twitter. Hall­dór segir Þór­ólf Guðna­son, sótt­varna­lækni, hafa hringt sér­stak­lega í sig til að til­kynna honum nokkuð merki­legar fréttir.

„Ég er heima með Co­vid og mig langaði að deila því með ykkur að Þór­ólfur sótt­varna­læknir hringdi í mig per­sónu­lega í morgun,“ segir Hall­dór.

Hann segir Þór­ólf hafa hringt í sig þar sem hann var staddur í bíl á­samt Víði Reynis­syni, yfir­lög­reglu­þjóni al­manna­varna, og Ölmu Möller, land­lækni, og hefur eftir sótt­varna­lækni:

„Hall­dór, við í þrí­eykinu, okkur liggur bara hugur á að vita, og við erum búin að ræða þetta hérna fram og til baka og við urðum bara að hringja í þig. Þetta er auð­vitað ríkis­leyndar­mál og fer ekkert lengra. En við verðum bara að fá að vita, hvernig er það eigin­lega að vera svona mikill king?“

Þrí­eykið góð­kunna var þá að sögn Hall­dórs saman­komið til að til­kynna honum að hann hafi greinst með glæ­nýtt af­brigði veirunnar skæðu, svo­kallað veislu­af­brigði.

„Þetta heitir sem sagt á fræði­málinu Co­vid Royal og þykir vera svona konung­legasta af­brigðið af veirunni til þessa. Og við áttum svo bara mjög fínt spjall um þetta og þau spurðu mig út í ein­kennin og líðanina og ég náttúr­lega bara sagði þeim sann­leikann, að það er bara al­gjör veisla að vera svona mikill king,“ segir Hall­dór glettinn.

Hann segir Þór­ólf hafa orðið á­búðar­fullan undir lok sam­talsins og viljað í­treka við hann nokkuð þegar Hall­dór stoppaði sótt­varna­lækninn af.

„Og þá sagði ég „Þór­ólfur minn, ég ætla að stoppa þig hér, ég veit hvað þú ert að fara að segja. Miklu valdi fylgir mikil á­byrgð, ég veit þetta, og ég tek því ekki af létt­úð að vera svona mikill king.“