Halldór ásgrímsson látinn

Halldór Ásgrímsson fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins lést á gjörgæsludeild Landspítalans í gærkvöld, 67 ára að aldri, eftir að hafa fengið alvarlegt hjartaáfall í bústað sínum í Grímsnesi á föstudag.


Með Halldóri er genginn einn áhrifamesti stjórnmálamaður síðustu áratuga en hann gegndi ráðherraembætti í samtals 19 ár, á tímabilinu 1983 til ársins 2006 að hann afréð að draga sig út úr stjórnmálum. Hann var sjávarútvegsráðherra um átta ára skeið, utanríkisráðherra um tíu ára skeið og síðustu tvö árin á ráðherrastóli sat hann í forætisráðuneytinu. Hann varð varaformaður Framsóknarflokksins 1980 og tók við formennsku flokksins 14 árum síðar sem hann gegndi um 12 ára skeið.


Eftir stjórnmálaferil sinn gerðist hann framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar frá 2007 til 2013.


Halldór lætur eftir sig eiginkonu, Sigurjónu Sigurðardóttur og þrjár uppkomnar dætur, auk barnabarna og barnabarnabarna.