Hallærisleg og plebbaleg mótmæli

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að fyrirhuguð mótmæli 1. maí nk. fyrir utan heimili Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra séu bæði plebbaleg og hallærisleg. Þá telur þingmaðurinn að mótsagnar gæti hjá þeim sem tali fyrir friðhelgi einkalífs á sama tíma og þeir styðji mótmæli við heimili fólks.
Þetta kemur fram í umræðum sem Brynjar tók þátt í á facebook í gær eftir að Hringbraut birti frétt um mótmælin fyrirhuguðu. Fréttin vakti mikla athygli og blendin viðbrögð.
\"Hvort er ógeðslegara, spillling Bjarna Ben, blekkingar og lygar. Eða friðsöm mótmæli eins og þessi?\" spyr Andri Sigurðsson sem styður mótmælin.
\"Þetta er bæði hallærislegt og plebbalegt, Andri, og verður málstað ykkar ekki til gagns,\" svarar Brynjar.
Andri Sigurðsson svarar á móti: \"Held einmitt að þú sért plebbinn í þessu dæmi og fólk sem ærist af reiði vegna mótmæla en ekki vegna glæpsins sem mótmælin snúast gegn. En þú ert ekki beint hlutlaus enda beinast mótmæli gegn þér og þinni ríkisstjórn.\"
Brynjar Níelsson svarar: \"Mér finnst skrítið að Píratar, sem á tyllidögum tala um mikilvægi friðhelgi einkalífsins, skuli vera helstu forkólfar mótmæla fyrir utan heimili fólks, Andri. Það er ekkert að marka ykkur.\"

Brögð voru að því í upptakti Búsáhaldabyltingarinnar að mótmælendur söfnuðust saman fyrir framan heimili ráðafólks til að krefjast réttlætis og eða afsagnar viðkomandi. Mjög þóttu þau mótmæli orka tvímælis og fleiri en færri fordæma nú fyrirhuguð mótmæli við heimili Bjarna og er ekki spurt um flokkslínur. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, var í hópi þeirra tugþúsunda Íslendinga sem lásu frétt Hringbrautar um mótmælin í gær. Deilir Árni Páll fréttinni með þessum orðum: \"Þetta er afskaplega ógeðfellt og fjarri öllu velsæmi. Fólk getur mótmælt við opinberar byggingar, en heimili fólks eiga að njóta friðhelgi.\"