Nýr meðferðarkjarni mun ekki leysa vanda krabbameinsdeildar, segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.
Þetta kemur fram í nýjasta pistli Höllu ávef Vísis.
Að sögn Höllu mun nýr meðferðarkjarni ekki leysa húsnæðisvanda dagdeildar blóð- og krabbameinslækninga þar sem flest þeirra sem greinast með illkynja blóðsjúkdóma og krabbamein fá lyfjameðferð.
„Meðferð sem í mörgum tilvikum reynir mjög á bæði sjúklinga og aðstandendur, fólk sem oft er að takast á við eitt erfiðasta verkefni lífs síns.“
Halla segir húsnæði deildarinnar löngu sprungið, plássið sé allt of lítið. Engin aðstaða sé fyrir aðstandendur, engin aðstaða til að matast og þá hafi sjúklingar takmarkaða möguleika á að eiga trúnaðarsamtöl í næði við heilbrigðisstarfsfólk.
„Aðgengi að snyrtingum er stórlega ábótavant. Starfsfólki er illmögulegt að sinna sínum störfum og annast um fólk með þeim hætti sem ætlast er til,“ segir Halla jafnframt og bætir við að deildin verði ekki hluti af nýja meðferðarkjarnanum sem nú rís.
„Nei, þetta bjargast ekki, það verður að koma aðstöðunni í lag. Spár um fjölgun krabbameinstilvika hér á landi gera ráð fyrir að krabbameinstilvikum muni fjölga um 40% til ársins 2035. Sífellt meiri árangur er af meðferð, sem þýðir bæði að fleiri læknast af krabbameinum og lifa með krabbamein sem langvinna sjúkdóma. Það kallar hins vegar oft á áframhaldandi þjónustu.
Krabbameinsfélagið hefur ítrekað vakið athygli á bráðri nauðsyn þess að leysa húsnæðisvanda deildarinnar til að tryggja sjúklingum bestu þjónustu sem möguleg er og starfsfólki aðstæður sem eru til þess fallnar að það þrífist vel í starfi. Félagið gekk svo langt að lofa fjármagni til byggingar nýrrar deildar til að flýta fyrir. Því miður skilaði það ekki tilætluðum árangri,“ segir Halla.
Halla bíður skýrslu sem er væntanleg á næstu dögum frá stjórnvöldum og segir hún Krabbameinsfélagið binda vonir við að með skýrslunni verði sett fram áætlun um nýja dagdeild þar sem mögulegt sé að mæta þeim verkefnum sem nú blasi við. „ Það einfaldlega þolir ekki bið,“ segir Halla að lokum.