Halla og andri snær á hringbraut

Forsetaframbjóðendurnir Halla Tómasdóttir og Andri Snær Magnason verða í viðtölum í Þjóðbraut Hringbrautar í kvöld. Þau eru næst á eftir Guðna Th. Jóhannessyni og Davíð Oddssyni í flygi frambjóðenda, sé mið tekið af skoðanakönnunum.

Davíð Oddssyni hefur verið boðið í viðtal, en hann hefur ekki þáð boðið.

Hringbraut mun gera forsetakosningum ágæt skil, ræða við frambjóðendur og fjalla um fylgisbreytingar og annað sem viðkemur kosningunum.

Umsjón með þætti kvöldsins er í höndum Sigurjóns M. Egilssonar og Lindu Blöndal. Þátturinn hefst kl.21.00 og er endursýndur kl.23.00.