Forsetaframbjóðandinn Halla Tómasdóttir er heldur betur á persónulegu nótunum í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í kvöld, en þar rekur hún sögu sína af hispursleysi framan við þáttastjórnandann Sigmund Erni Rúnarsson.
Halla er komin af alþýðufólki og segir að þar sé grunn hennar í lífinu að finna, en lífsreynsla hennar er mikil enda hún sé varla komin á miðjan aldur; í hálfan annan áratug hefur starfsvettvangur hennar verið austan- og vestanhafs og þar kom að því að hún t+om virkan þátt í viðskiptalífinu hér heima á árunum fyrir hrun þar til henni ofbauð áhættusæknin og stofnaði Auði Kapital sem lagði áherslu á samfélagslegan rekstur fremur en gróðaprang eins og hún rekur á sinn hátt í viðtalinu í kvöld.
Hrunið var henni erfitt, enda finnur hún þar til sinnar ábyrgðar sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs á tímum blöðrunnar miklu, en á sama tíma eignaðist hún börnin sín tvö með stuttu millibili og missti pabba sinn eftir einnar viku veikindi.
Mannamál eru á dagskrá klukkan 20:15 í kvöld.