Halla býður sig fram til forseta

Halla Tóm­as­dótt­ir frum­kvöðull og fjár­fest­ir býður sig fram til embætt­is for­seta Íslands. Þetta til­kynnti hún á blaðamanna­fundi á heim­ili sínu í Kópa­vogi á fjórða tímanum í dag.

Í tilkynningu um framboð Höllu kemur fram að hundruð manna hafi þrýst á Höllu að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands og eru kostir hennar tíundaðir á fésbók framboðsins, en þar er Halla sögð hafa til að bera bjart­sýni, áræðni og kjark, allt saman eiginleika \"sem við þurf­um á að halda til að tak­ast á við nú­tím­ann og framtíðina,“ eins og segir þar.

Að því er fram kem­ur á sömu síðu er Halla upp­al­in á Kárs­nes­inu í Kópa­vogi, þar sem hún býr nú með eig­in­manni sín­um, Birni Skúla­syni. Björn er viðskipta­fræðing­ur og rek­ur versl­un Nóa­túns í Aust­ur­veri og eiga þau sam­an tvö börn.

Þá seg­ir einnig að Halla sé ættuð af Strönd­um þar sem móðir henn­ar, Kristjana Sig­urðardótt­ir, þroskaþjálfi ólst upp, og úr Skagaf­irði þar sem faðir henn­ar, Tóm­as Björn Þór­halls­son, pípu­lagn­inga­meist­ari og síðar hús­vörður við Sunnu­hlíð er al­inn upp.

Halla var skipt­inemi í Banda­ríkj­un­um og bjó þar í tíu ár. Þá lærði hún viðskipta­fræði með áherslu á stjórn­un og mannauðsmál og lauk alþjóðlegri MBA gráðu með áherslu á alþjóðleg sam­skipti og tungu­mál.