Veðurfræðingurinn Trausti Jónsson hefur skrifað pistil á eigin bloggsvæði þar sem hann rekur komu víðáttumikillar lægðar sem nálgast landið. Hann segir að áttin verði suðlæg en hver úrkomubakkinn á fætur öðrum berist upp að landinu – „ýmist úr suðaustri (með mikilli bleytu suðaustanlands og á Austfjörðum) - eða úr suðri eða suðvestri (með hráslagaskúrum - eða slydduéljum á Suður- og Vesturlandi).
Þótt þetta sé til þess að gera meinlitið veðurlag finnst segir Trausti veðurfræðingur það heldur „hráslagalegt og leiðinlegt“ en kunni þó að vera smekksatriði. Loftið sem streymi út á Atlantshaf sunnan Grænlands sé mjög kalt og reikna megi með að það gráni að næturlagi - festi þó varla á láglendi nema rétt í morgunsárið - en hálkan sé aldrei langt undan.
Trausti birtir skýringarmynd með bloggi sínu sem Hringbraut fékk að láni hjá veðurfræðingnum kunna.