Hálfur ráðherrabíll myndi duga

Hlynur Hallsson, safnstjóri á Akureyri, gerir rekstur listasafns að umræðuefni í pistli sem hann skrifar í Fréttablaðið í dag.

Það bendir safnstjórinn á að í rekstri listasafna fái allir laun – nema listamennirnir sjálfir, þeir sem sýna verk sín.

„Þetta er sambærilegt við að allir starfsmenn Alþingis fengju greidd laun nema þingmennirnir,“ segir Hlynur og spyr hvort sú staða gæti komið upp að íslenskir þingmenn myndu láta bjóða sér að starfa í sjálfboðavinnu fyrir þjóðina af því að vinnan væri svo skemmtileg.

Brýnt er að taka á þessu að mati Hlyns og snýst ekki um háar fjárhæðir. Þannig þyrfti Listasafnið á Akureyri aðeins jafnvirði hálfs ráðherrabíls á ársgrunni til að geta greitt listamönnum fyrir vinnu þeirra.