Hálfur laugavegur hulinn snjó

\"Fyrsti hópurinn byrjaði að ganga Laugaveginn í morgun og varð að byrja á öfugum enda, þ.e.a.s. í Þórsmörk. Hálf gönguleiðin er þakin snjó og strax í Hvanngili er allt orðið hvítt,\" segir Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands við hringbraut.is.

Hann segir að menn muni ekki aðra eins tíð að Fjallabaki og jafnvel allra elstu menn þekki ekki til svona tíðarfars á svæðinu. \"Það segir auðvitað sína sögu um veðurlagið á þessum langa vetri sem er að baki að jafnfallinn snjór á jöklum er 12 til 14 metra þykkur sem þýðir að þeir eru í reynd að stækka,\" segir Páll og bendir jafnframt á að Kjölur og Sprengisandur séu nú yfir að líta sem á útmánuðum.

Fyrsta Laugavegsgangan hófst sem fyrr segir í morgun og stóð tæpt því næturfrost hefur verið að Fjallabaki allt þar til nú um nýliðna helgi. \"Það er augljóst að það verður snjór á hluta Laugavegarins í allt sumar, ekki síst í Hrafntinnuskeri,\" segir hann en telur að mestu snjóalögin hverfi þó á næstu tveimur vikum, jafnvel næstu 10 dögum ef hitinn haldist eitthvað yfir 10 gráðunum.    

Myndin sem fylgir fréttinni er tekin í Hrafntinnuskeri seint í maí.