Hálfþrítug og við það að gefast upp

Katrín Björg Andersen er gestur Sigmundar Ernis í þættinum Örlögin á Hringbraut í kvöld, en þar segir hún athyglisverða sögu sína af því hvernig hún komst í þrot með líf sitt á miðjum þrítugsaldri.

Katrín Björg er að mörgu leyti dæmigerður fulltrúi þess þriðjungs þjóðarinnar sem flosnar upp úr námi á æskuárum og fer út í atvinnulífið án þess að hafa fomlega menntun. Þar sóttu að henni sífellt verri veikindi uns svo var komið að hún gat ekki lengur mætt til vinnu og við tók tímabil deburðar og mikilla efasemda um eigið ágæti.

Í einlægu og hispurslausu samtali sínu við Sigmund Erni í kvöld segir hún hvernig hún náði botninum og viðspyrnunni þaðan, en nú er hún hamingjusöm manneskja á lokametrunum við að ljúka námi sem fleytir henni inn í óskastarfið, þökk sé meðal annars Virk starfsendurhæfingarsjóðnum sem kom að málum Katrínar Bjargar og studdi hana að nýju út í lífið.

Örlögin er nýr viðtalsþáttur á Hringbraut þar sem rætt er við venjulegt fólk sem glímt hefur við óvenjulegar aðstæður - og er hann frumsýndur öll mánudagskvöld klukkan 20:15.