Samanlagður hagnaður stóru viðskiptabankanna þriggja, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans var 42,5 milljarðar íslenskra króna eftir skatta á fyrri helmingi ársins. Það er fjórum og hálfum milljarði minna en á sama tímabili í fyrra.
Einn bankinn, Arion banki, sker sig úr hvað hagnað varðar en hagnaður bankans nam 19,3 milljörðum og jókst um 1,9 milljarða frá sama tíma í fyrra.
Hagnaður Landsbankans nam 12,4 milljörðum króna eftir skatta en var 14,9 milljarðar á sama tíma í fyrra og hagnaður Íslandsbanka var 10,8 milljarðar samanborið við 14,7 milljarða króna áður.
Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka hefur sagt að þessar tölur í tilviki Íslandsbanka kalli á enn frekari aðhaldsaðgerðir og fækkun starfsfólks.
Svokallaðir einskiptisliðir setja mikið mark á uppgjör Arion að því er segir í Markaðnum. Er það skráning og sala á hlutum í Reitum og drykkjarframleiðandanum Refresco Gerber. Aftur á móti segir þar að heldur dragi úr áhrifum einskiptisliða á rekstur Landsbankans og Íslandsbanka.