Ritstjórarnir: hálendisþjóðgarðurinn er hurðin sem vg getur skellt

Það er skellt í pólitíska greiningu á ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur í ritstjóraspjalli kvöldsins í frétta- og umræðuþættinum 21, en þar spá þeir Benedikt Jóhannesson og Björgvin G. Sigurðsson í spilastokk stjórnmálanna, báðir ritstjórar á fyrri og seinni tíð - og fyrrverandi ráðherrar.

Benedikt segir að kyrrstöðustjórnin sem nú er við lýði kappkosti að sigla lygnan sjó, en samstarfið sé þó öllum flokkunum erfitt eins og sjáist á skoðanakönnunum, einna helst kannski VG sem er að missa burðarfylgi sitt yfir til annarra vinstri flokka. Björgvin segir VG vera á afar hálum ís og þurfi að skilja sig pólitískt frá gömlu valdaflokkunum hægra megin við sig ef ekki eigi illa að fara fyrir flokkinn - og sennilega muni það gerast með hálendisþjóðgarðinum sem eigi að keyra í gegn á fáeinum vikum; þar sé komin hurðin sem VG geti skellt með þeim orðum að ómögulegt sé að vinna með íhaldsflokkunum.Í þessu mengi verði líka að hafa í huga að einn helstu ráðherra flokksins, Svandís Svavarsdóttir sé nú alvarlega löskuð eftir ein óheppilegustu ummæli kjörtímabilsins og muni líklega sitja uppi með skömmina næstu misserin, sem er afleitt fyrir flokkinn. 

Í spjalli þeir Benedikts og Björgvins með Sigmundi Erni er einnig komið inn á andvaraleysi stjórnvalda gagnvart innviðauppbyggingu úti á landi sem komið hefur heldur betur í ljós eftir veðurósköpin sem gengið hafa yfir Ísland á síðustu tveimur mánuðum.