Snjóþyngslin inn til landsins nú í sumarbyrjun hafa sett gönguáætlanir Ferðafélags Íslands úr skorðum, en vanir göngumenn muna vart annað eins fannfergi á kunnum óbyggðaleiðum og nú í ár
Páll Guðpmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands, sem á og rekur fjölmarga skála inn til landsins, segir félagið hafa fundað reglulega með Umhverfisstofnun, Vegagerðinni og ferðaþjónustufyrirtækjum um mögulegar aðgerðir til að flýta fyrir opnun vega inn á hálendið en þar verði forsjáin að vera að leiðarljósi svo kappið skemmi ekki viðkvæma náttúruna á þessum árstíma. Páll telur að sumaropnun svæðanna sem átti að vera 15. júní muni tefjast eitthvað og ef ekki farið að hlýna að ráði næstu daga á þessum svæðum sé hætt við að aflýsa þurfi fyrstu ferðunum.
Páll var í hópi Ferðafélagsmanna sem fór inn í Hrafntinnusker nýverið, þar sem myndin sem fylgir fréttinni var tekin, en þar var þriggja metra jafnfallinn snjór sem fer ekki svo glatt nema sól og hiti fái unnið sitt starf af kappi.