Ríkið: 2,3 millur fyrir umdeilt sjálfshól

Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, mun að líkindum leggja fram fyrirspurn á Alþingi í dag vegna auglýsinga ríkisstjórnarinnar sem birtust nýverið í Mogga og Fréttablaði sem og á eyjan.is. Þar voru afrek stjórnarinnar tíunduð.

Formaður Samfylkingarinnar hefur sagt auglýsingarnar kosningaáróður og Björn Valur Gíslason, varaþingmaður VG, hefur skrifað gagnrýnið um þessa eyðslu almannafjár líkt og visir.is hjefur fjallað um.

Visir.is hefur sent upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar formlega fyrirspurn í mörgum liðum vegna málsins en engin svör fengið, segir í frétt vefmiðilsins.

Í athugasemd við frétt Vísis vitnar Einar Steingrímsson, stærðfræðingur og prófessor við erlendan háskóla, einn umsækjenda um rektorsstöðu í HÍ, í heimskunnan foringja, sjálfan Napoleon Bonaparte út frá sjónarhóli ríkisstjórnarinnar. Einar skrifar: „\"Ríkið, það er ég. Og haldiði svo bara áfram að fokka ykkur.\"

Uppfært: Kjarninn hefur nú upplýst að auglýsingarnar hafi kostað skattgreiðendur 2,3 milljónir króna.