Halda undirskriftasöfnun áfram þrátt fyrir hunsun flokksforystu - „safna persónuupplýsingum og neita að gefa upp hvernig það gengur“

Undirskriftum Sjálfstæðismanna sem krefjast atkvæðagreiðslu um þriðja orkupakkann verður ekki skilað áður en Alþingi greiðir atkvæði um málið þann 2. september næstkomandi. Jón Kári Jónsson, formaður félags Sjálfstæðismanna í Hlíða- og Holtahverfi í Reykjavík, stendur að söfnuninni og segir það ekki þjóna neinum tilgangi þar sem forysta flokksins ætli ekki að taka undirskriftirnar til greina. RÚV greinir frá.

„Með til­liti til þess sem kom fram á fundi í Val­höll, að und­ir­skrift­irn­ar yrðu í besta falli hafðar til hliðsjón­ar, þá sjá­um við enga ástæðu til þess að vera að skila þessu fyrr en að mál­inu lýk­ur á Alþingi,“ segir Jón Kári við í samtali við Mbl.is.

Frá því í byrjun ágúst hefur átt sér stað undirskriftasöfnun meðal flokksbundinna sjálfstæðismanna þar sem þeir sem styðja við söfnunina krefjast þess að farið verði fram á það við miðstjórn Sjálf­stæðis­flokks­ins að fram fari at­kvæðagreiðsla inn­an flokks­ins um þriðja orkupakka Evr­ópu­sam­bands­ins.

Gefa ekki upp fjölda undirskrifta

Yfirlýst markmið söfnunarinnar er að ná 5.000 undirskriftum en Jón Kári hefur ekki viljað gefa upp hversu margar undirskriftir hafa safnast. Samkvæmt umfjöllun Mbl.is ræða Jón Kári og aðrir sem standa að undirskriftasöfnuninni nú hvenær fjöldinn verður gefinn upp.

„Ég sé enga ástæðu til að hætta und­ir­skrift­um fyrr en málið er úr sög­unni. Ég veit ekki hversu marg­ar und­ir­skrift­ir þetta verða og það er ekki víst að þær nái 5.000 en það er í öllu falli tals­vert aðhald fólgið í því að fá und­ir­skrift­ir þúsunda flokks­manna,“ seg­ir Jón Kári við Mbl.is.

Úr því að flokksforystan hyggst virða söfnunina að vettugi finnst honum þrátt fyrir það mikilvægt að senda henni skilaboð. „Það skiptir máli ef þúsundir flokksmanna senda þau skilaboð að þeir vilji fá að kjósa um málið,“ segir hann við RÚV.

Davíð Þorlákssyni, forstöðumanni sam­keppn­is­hæfnisviðs Sam­taka at­vinnu­lífs­ins og fyrrverandi formanni Sambands ungra Sjálfstæðismanna, þykir það athyglisvert að Jón Kári og félagar vilji ekki gefa upp fjölda undirskrifta.

„Menn sem kalla eftir beinu lýðræði, því niðurstaða þeirra sem við höfum kosið sem okkar fulltrúa hentar þeim ekki, safna persónuupplýsingum um fólk og neita að gefa upp hvernig það gengur. You can\t make this shit up