Hakið tilvalið fyrir jólahangikjötið

Hakið er framúrskarandi flott hönnun og smellpassar fyrir jólahangikjötið.  Hátíðarborðið verður glæsilegra með Hakinu og lyftir jólahangikjötinu upp á hærra plan þegar það er framreidd með þessum hætti.  Það er ætlað fyrir tvíreykt hangikjöt og einnig er hægt að nýta það fyrir hin glæsilegu spænsku hráskinkulæri sem einnig eru vinsæl á íslenskum heimilum. Hægt er að færa litla kubbinn á brettinu eftir hvað lærið er stórt.  Hakið er íslenskt handverk, frá Hnyðju sem er lítið fjölskyldufyrirtæki sem leggur metnað sinn í að vera með íslenskt, umhverfisvænt handverk á sanngjörnu verði. 

Hnyðja er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í nytja- og skrautmunum, sem eru að mestu unnir úr tré. Hver einasti hlutur er smíðaður af natni í höndum og lögð í hann mikil vinna og alúð í anda liðinna ára. Ávallt er leitast eftir að hafa efnivið eins náttulegan og umhverfisvænan og býðst hverju sinni. Þetta er þó eingöngu hugsjónavinna og hefur til dæmis ekki verið ofnæmis- eða öryggisprófað nema af fjölskyldunni sem framleiða. Olían er svokölluð „foodsafe“ olía – það er að segja olía sem má nota á eldhúsvörur og er bakteríufráhrindandi.

Hægt er skoða vörurnar á heimasíðu Hnyðju:  www.hnydja.is