Háir vextir keyra húsaleiguna upp

Sá reyndi fasteignasali sem Guðbergur Guðbergsson er segir að leiguverð á Íslandi sé ekki endilega svo hátt, heldur megi þensluna á þeim markaði rekja til mjög hárra vaxta, en kostnaður af peningum sé alltof hár á Íslandi.

Þetta kom í fram í fasteignaþættinum Afsali í gærkvöld, en þar sagði Guðbergur að stýrivaxtahækkanir Seðlabankastjóra væru með öllu óskiljanlegar og húsnæðislán á Íslandi engan vegin nógu hagstæð. Landinu væri stýrt af bönkum og fjármálastofnunum, sem stjórnmálamenn hefðu ekki kjark til að taka á. Skipti þá litlu þótt ríkið ætti í dag tvo banka.

Íslenski leigumarkaðurinn er smár í samanburði við nágrannalöndin, en fram kom í nýrri skýrslu greiningadeildar Arion banka að hlutfall leigjenda hér á landi er mun lægra en meðaltalið í Evrópu. Guðbergur segir mikilvægt að markaðurinn hér á landi nái að þroskast - og tekur sem dæmi leigumarkaðinn í Svíþjóð. Þar gildi í fyrsta lagi reglur um þær hækkanir sem leyfilegar séu á húsaleigu en eins geti leigjendur þar gert langtímasamninga, til dæmis til 25 ára. Ef leigjandi vilji síðan losna fyrr og flytja, sé það á hans ábyrgð að finna nýjan leigjanda í húsnæðið. Kvaðirnar séu því þær að langtímaleigusamningurinn losi ekki leigjandan hvenær sem hann kjósi, en kostirnir séu hins vegar þeir að leigjendur búi í öryggi og þurfi ekki að óttast það að missa húsnæðið eða að fá á sig óvæntan skell vegna hækkunar á leigu.

Fasteignaþátturinn Afsal er frumsýndur öll fimmtudagskvöld og endursýndur öll mánudagskvöld.