Háhýsin samþykkt við borgartún

Borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur samþykkti breytt deili­skipu­lag lóðar­inn­ar Borg­ar­tún 24 í gær. Mun þar hefjast upp­bygg­ing 65 íbúða sunn­an við Höfða gegn mót­mæl­um íbúa á svæðinu.

Arn­ar Þór Stef­áns­son, lögmaður hjá LEX, kom mót­mæl­um fyr­ir hönd hús­fé­lags Mána­túns 7 til 17 á fram­færi í bréfi til skipu­lags­full­trúa þar sem hann sagði að fyr­ir­hugaðar skipu­lags­breyt­ing­ar á svæðinu væru í and­stöðu við lög og brytu gegn lög­vörðum hags­mun­um íbúa Mána­túns.

Hafa íbú­ar meðal ann­ars lýst yfir áhyggj­um með þann bíla­stæðaskort sem nú þegar er á svæðinu og er sagt að íbú­ar í Borg­ar­túni 24 muni leggja í þau bíla­stæði sem nú eru á lóð Mána­túns og segja íbú­ar að ekk­ert sýni­legt mat hafi verið lagt á þenn­an þátt máls­ins, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um bygg­ingaráform þessi í Morg­un­blaðinu í dag.