Hagvöxtur hefur aukist um nálega 3%

Lands­fram­leiðslan á fyrsta árs­fjórðungi 2015 jókst um 2,9% borið sam­an við fyrsta árs­fjórðung 2014. Á sama tíma juk­ust þjóðarút­gjöld, sem eru sam­tala neyslu og fjár­fest­ing­ar, um 9,9%.


Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands þar sem segir að einka­neysla hafi aukist um 3,9% á þessum tíma, sam­neysla um 1,5% og fjár­fest­ing um 23,5%. Útflutn­ing­ur jókst um 2,7% en inn­flutn­ing­ur tölu­vert meira, eða um 17,4%.


Árstíðaleiðrétt lands­fram­leiðsla dróst sam­an um 1,5% milli fjórða árs­fjórðungs 2014 og fyrsta árs­fjórðungs 2015. Þar af jókst einka­neysla um 0,8%, sam­neysla um 0,3% og fjár­fest­ing um 16,1%. Inn­flutn­ing­ur jókst um 12,8% á meðan út­flutn­ing­ur jókst um 2,4%.