Evrópski seðlabankinn (ECB) áformar að herða á peningamálstefnu ECB eftir mörg ár af örvunarðagerðum og lágum stýrivöxtum. Ferli ECB byrjar næsta haust þrátt fyrir að verðbólga í evruríkjum Evrópusambandsins (ESB) sem eru nítján að tölu sé enn lág eða 1,3% og því talsvert undir verðbólgumarkmiðum ESCB. Lág verðbólga er oft til marks um slakt ástand í efnahagsmálum.
Hagvöxtur á ársgrundvelli á evrusvæðinu er 2,1%. Á öðrum ársfjórðungi ársins 2017 var 0,6% hagvöxtur á evrusvæðinu samkvæmt gögnum ESB. Samkvæmt endurskoðuðum tölum Hagstofu Evrópusambandsins (EUROSTAT) var hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi ársins 2017 0,5% á evrusvæðinu. Frá þessu er sagt í Viðskiptablaðinu.
Nánar www.ec.europa.eu www.vb.is