Hagvöxtur mestur á íslandi

Góðar horfur eru í íslensku efnahagslífi. Hagvöxtur er mestur á Íslandi af löndum sem aðild eiga að Efnahags- og framfarstofnun Evrópu (OECD).

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu OECD um Ísland sem birt er í dag.

Þótt horfur séu góðar á Íslandi skapar þensla hættu á ofhitnun efnahagslífsins að mati höfunda skýrslu OECD. Þeir eru bæði íslenskir sérfæðingar og erlendir.

OECD telur því mikilvægt að efla aðhald í opinberum fjármálum og rekstri. Peningstefnan verður að vera viðbúin því að bregðast við auknum verðbólguvæntingum.

rtá

Nánar www.stjornarradid.is