Ísland getur sinnt miklu betri hagsmunagæslu í samskiptum við Evrópusambandið sem umsóknarríki en eingöngu í gegnum EES samninginn. Þetta fullyrti Pia Hansson forstöðumaður alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í sjónvarpsþættinum Heimsljósi á Hringbraut í gærkvöld, en þar var fjallað í þaula um kosti þess og galla að ganga í ESB. Sem umsóknarrríki sætum við áfram við borðið og hefðum áhrif á framvindu mála sem vörðuðu ríka hagsmuni þjóðarinnar, ef við segðum okkur frá umsókninni að fullu töpuðust þau að fullu. Pia taldi hinsvegar mjög á reiki hvort Ísland teldist enn til umsóknarríkja og nyti þannig áfram þeirra verulegu fríðinda sem því fylgir.
Gunnar Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskólans sagði í þættinum að nauðsynlegt væri að fara aftur í greiningarvinnu varðandi stöðu Íslands gagnvart ESB þar eð Evrópusambandið væri í stöðugu breytingarferli með breyttum aðstæðum í álfunni. Þær skýrslur sem unnar hefði verið á síðasta ári um stöðu Íslands gagnvart ESB væru því ekki lengur hægt að nýta til að metaa kosti og galla aðildar.