Hagsmunir ks leiðandi í búvörusamningi?

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem í samtali við Hringbraut falast eftir nafnleynd staðhæfir að stefna Sjálfstæðisflokksins um markaðsbúskap og viðskiptafrelsi hafi orðið undir með nýjum búvörusamningi. \"Þessi samningur er sjálfstæðismönnum ekki að skapi,\" segir þingmaðurinn.

Pétur Gunnarsson blaðamaður hefur ýjað að því að hagsmunir Kaupfélags Skagfirðinga hafi verið teknir fram yfir annað með þeirri leið sem farin verður en fallið var frá því að afnema mjólkurkvóta í takt við nýja tíma.

\"Kaupfélag Skagfirðinga hefur lánað bændum peninga með veði í mjólkurkvóta. Hugmyndir um afnám kvótakerfisins ógnuðu kaupfélaginu. Nú eru stjórnmálamenn í eigu kaupfélagsins búnir að bera hag almennings fyrir borð til að bjarga kaupfélaginu sínu,\" skrifar Pétur í færslu á facebook þar sem hann deilir frétt um undirritun samninga um búvörusamninginn. Rúv fjallaði um ólgu á lokastigi samningsins vegna afskipta KS.

Í samningnum sem undirritaður var í gær hækka útgöld ríkisins fyrsta árið um 900 milljónir króna en lækka síðar. Samið til tíu ára sem þykir mjög langur tími á sama tíma og ákall um breytingar á fyrirkomulaginu er nokkuð fyrirferðarmikið. Þeir sem standa að samningnum sem gerður er milli bænda og hins opinbera, þ.e. Bændasamtaka Íslands, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs, segja að með samningunum verði ráðist í umfangsmiklar breytingar á starfsumhverfi landbúnaðarins sem kalli á langtímahugsun.

Ýmsir vinklar hafa komið fram í gagnrýni á samninginn. Þannig segir blaðamaður Stundarinnar í pistli að líta megi svo á sem samningurinn þýði út frá kostnaðarhlið ríkisins að allir 4.800 bændur landsins verði nú á fullum listamannalaunum í 10 ár.