Hagsmunir íslands: skoðið stóru svörin

\"Ef setningin „hagsmunum Íslands er best borgið utan ESB“ er skoðuð á google kemur upp nánast samhljóða yfirlýsing frá Vinstri Grænum, Sjálfstæðisflokknum, Framsóknarflokknum og Heimsýnarsamtökunum.\"

Þetta vekur athafnamanninn Thomas Möller til umhugsunar í nýjasta pistli hans á hringbraut.is, en fyrri skrif hans um gjaldmiðilsmál á vefnum hafa vakið mikla athygli. Í nýjasta pistlinum veltir hann fyrir sér hverjir raunverulegir hagsmunir Íslendinga eru og spyr hvort hægt sé að tala um sameiginlega hagsmuni allrar þjóðarinnar þegar fjallað er um samstarf Íslands við ESB.

Hann spyr hvort þá sé verið að tala um ...

  • Hagsmuni almennings sem vill jafnrétti og réttlátt samfélag, gott heilbrigðiskerfi og skólakerfi, stöðugleika, lága vexti af lánunum sínum, lágt matvælaverð og samkeppishæf launakjör?
  • Hagsmuni atvinnulífsins sem vill viðskiptafrelsi án verndartolla, skynsama skattheimtu, heilbrigða samkeppni, stöðugleika í efnahagslífinu og aðgang að lánsfé með hagstæðum lánakjörum?
  • Hagsmuni sjávarútvegsins sem þarf langtímahugsun og fyrirsjáanleika við úthlutun aflaheimilda og tollfrjálsan aðgang að erlendum mörkuðum með fullunnar sjávarafurðir?
  • Hagsmuni lántakenda sem vilja sjá aukna samkeppni á lánamarkaði, hugsanlega með erlendum bönkum sem bjóða hagstæð lánakjör án verðtryggingar eins og eru í boði í nágrannalöndum okkar?
  • Hagsmuni innlendu bankanna sem geta hagnast á útlánum sínum í íslenskum krónum. Nýlega var fullyrt á þessum vef „að krónan sé besti vinur þeirra sem vilja koma í veg fyrir alvöru samkeppni í bankakerfinu“.

Og því næst finnst honum vert að skoða hverjir græði mest á því að vera utan ESB, talandi og skrifandi um \"hagsmuni þjóðarinnar\". Þjónar það ...

  • Hagsmunum lántakenda að borga um 200 milljarða á ári í vexti umfram lántakendur í nágrannalöndum okkar
  • Hagsmunum ríkissjóðs að borga tugi milljarða á ári í vexti aukalega vegna gjaldmiðils okkar?
  • Hagsmunum sjávarútvegs að borga háan toll af fullunnum sjávarafurðum?
  • Hagsmunum bænda að geta ekki flutt út vörur sínar, tollfrjálst á erlenda markaði?
  • Hagsmunum neytenda að borga um 10 milljarða á ári í verndartolla af sjálfsögðum matvælum til heimilisins og að úrval af matvörum sé takmarkað vegna innflutningskvóta?
  • Hagsmunum fyrirtækja í inn- og útflutningi að borga um 20 milljarða á ári í kostnað við gjaldeyrisviðskipti.
  • Hagsmunum almennings að vera með mynt sem er ónothæf til að kaupa vörur og þjónustu utan landsteinanna?
  • Hagsmunum hagkerfisins að hingað streymi peningar erlendis frá vegna vaxtamunaviðskipta og myndi nýja „snjóhengju“?

Thomas bendir á staðreyndir: \"Öll stærstu fyrirtæki landsins hafa svarað þessu með því að taka öll sín stærri lán og færa bókhald sitt í erlendri mynt. Stóru sjávarútvegsfyrirtækin hafa þannig sýnt hagsýni og skynsemi og sparað sér milljarðatugi í vaxtakostnað. Á meðan borgar almenningur vexti með verðbólguálagi og vísitölutryggingu. Unga fólkið er að svara þessum spurningum með umtalsverðum landflótta síðustu mánuði þrátt fyrir uppsveifluna.\"

Altso, þeir sem geta, velja augljósustu leiðina í þessum efnum ...