Sandra Borg Bjarnadóttir, fatahönnuður og Saga Sigríðardóttir, innanhúshönnuður eru meðal þeirra sem stofnuðu samtökin. Þær segja i viðtali á Hringbraut að ekki sé um að ræða einhverj hreysi eins og stundum er misskilningur um, heldur smáíbúðir eða smáhús í sérstökum hverfum jafnvel. Ekki sé verið að gefa neinn afslátt á standard húsnæðisins. Þær benda á að uppbygging smáhýsa sé í höndum sveitarfélaganna og í deiliskipulagi þeirra. Slík smáheimili passa til dæmis ekki inn í götuskipulag með miklu stærri byggingum.
\"Þurfa allir að eiga bor?\"
Smáheimili er bæði lífsstíll en líka valkostur fyrir þá sem eiga ekki nægan pening til að komast inn á fasteignamarkaðinn. Saga sagðist sjálf ekki komast úr foreldrahúsum þótt hún væri í fullri vinnu. Hún benti líka á að fólk sé farið að huga meira að því að safna minna af hlutum í kringum sig og spyr af hverju allir þurfi til dæmis að eiga borvél á heimilinu. „Heima hjá mér eru til þrjár borvélar og við erum fjögur í heimilii“, benti hún á.
Hlekkja sig ekki í skuldir
Hugmyndin fjallar um að geta byggt sér hús fyrir mun minni fjárhæð en tíðkast í dag og býður upp á að tilvonandi íbúar þurfi ekki að setja sig í skuldabönd í fleiri áratugi ef þeir vilja eignast sitt eigið heimili. Geta jafnvel tekið þátt í byggingaferlinu að miklu leyti. Smáheimili snúast ekki um að búa í litlu og þröngu húsnæði, heldur í rými sem er mátulega stórt, en það er lykilatriði í hugmyndafræðinni. Að heimilið sé „mátulega stórt“ og sem íbúar hanna eftir þörfum sínum og smekk. Viðtalið verður sýn á Hringbraut í kvöld kl.21:20