Hagnaðurinn nam 3,1 milljarði króna

Hagnaður Símans nam 3,1 milljarði króna á síðasta ári og jókst um 11,7% á milli ára. Heildartekjur drógust saman um 3,9% og námu 28,4 milljörðum króna, en leiðrétt fyrir aflagðri starfsemi dróst velta saman um 1,8% milli ára. „Tekjur lækkuðu vegna lægra verðs á farsímamarkaði, minni búnaðarsölu og aflagðrar starfsemi,“ segir Orri Hauksson forstjóri í afkomutilkynningu til Kauphallar. „Kostnaðurinn lækkaði hins vegar enn hraðar, til að mynda dróst launaliðurinn saman um 642 milljónir milli ára. Skuldir lækkuðu á árinu um rúma fimm milljarða.“ Stjórn Símans leggur til að arð- greiðsla nemi 10% af hagnaði, eða 310 milljónum, og að farið verði í framkvæmd endurkaupaáætlunar hlutabréfa fyrir allt að 40% af hagnaði ársins 2017.