Rekstur Landsvirkjunar gekk vel á árinu 2017. Orkuvinnsla og orkusala hafa aldrei verið meiri, eða 14,3 TWst. Einnig voru tekjur þær hæstu í sögu fyrirtækisins. Ytri aðstæður voru fyrirtækinu hagstæðar. Má þar nefna hækkun álverðs um 23% milli ára. Veltan var $ 491 milljónir og hagnaður $ 108 milljónir.