Hagnaður stóru bankanna stóreykst

Samanlagður hagnaður stóru viðskiptabankanna jókst um ríflega 70% á fyrstu þremur mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Alls nam hagnaður Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans 26,7 milljörðum á þessum tíma.


Að því er fram kemur á viðskiptasíðum Morgunblaðsins í dag skýrist þessi góða afkoma að mestu leyti af einskiptisliðum í tilviki Arion banka, en hagnaður bankans af reglulegri starfsemi nam 1,7 milljarði króna. Hagnaður Íslandsbanka af reglulegri starfsemi á þessum tíma var 4,4 milljarðar króna og ef horft er til sama liðar í rekstri Landsbankans, sem er í meirihluta í eigu ríkisins, ólíkt hinum bönkunum tveimur, var gróði hans nálægt sjö milljörðum króna á þessum þremur fyrstu mánuðum ársins.


Samtals batnar afkoma þessara banka um 72% á milli ára.