Þótt IKEA búðin í Garðabæ hafi síðast verið í fréttum eftir neyðarlegan jólageitarbruna sjá viðskiptavinir innanlands til þess að rekstrarfélag búðarinnar brennir ekki peningum. Þvert á móti er góður hagnaður af starfseminni.
Miklatorg ehf sem rekur verslun IKEA hér á landi hagnaðist um 637 milljónir króna á síðasta rekstarári. Visir.is greinir fyrst frá þessu með því að rýna í ársreikninga. Hagnaður félagsins nær tvöfaldaðist milli ára en rekstrarárið 2013-2014 nam hagnaðurinn 357 milljónum króna.
Ekki alls fyrir löngu ræddu forráðamenn IKEA á Íslandi þann möguleika að opna búð á Akureyri. Það mál er enn í biðstöðu samkvæmt upplýsingum Hringbrautar. Talið er að hagnaðurinn innanlands verði væntanlega fremur til að auka líkurnar á opnun í hinu bjarta norðri fremur en hitt.
Í viðtali við akureyri.net í fyrrasumar sagði markaðsstjóri IKEA: “Minni staðsetningar eru í skoðun hjá IKEA úti og því er þetta mál í biðstöðu ennþá.“
Hefur verið rætt um 5000 fermetra búð fyrir norðan með vinsælli vörum.