Þórður Snær Júlíusson skrifar fréttaskýringu sem Kjarninn birti í gær um arðgreiðslur til eigenda í sjávarútvegi. Samanlagt hefur hagur sjávarútvegsfyrirtækja vænkast um 366,8 milljarða króna á örfáum árum.
Eigendur þeirra hafa notið góðs af því í gegnum háar arðgreiðslur. Frá 2011 hafa veiðigjöld numið 45,2 milljörðum króna. Samanlagðar arðgreiðslur sjávarútvegsfyrirtækja til eigenda sinna frá árinu 2010 nema 65,8 milljörðum króna.
Eigið fé þeirra eftir hrun hefur batnað um 300 milljarða króna. Því hefur hagur sjávarútvegsins vænkast um 365,8 milljarða króna á síðastliðnum árum. Þetta kom fram í kynningu á Sjávarútvegsdeginum síðastliðinn þriðjudag. Sjá nánar á www.kjarninn.is
Þar kom fram að hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja frá árinu 2009 og út síðasta ár hefur numið samtals 342 milljörðum króna. Þessi upphæð myndi duga fyrir 43,3% prósentum áætlaðra útgjalda ríkissjóðs ári 2018.
Frá árinu 2011 hafa þessi fyrirtæki greitt ríkissjóði 45,2 milljarða króna í formi veiðigjalda. Veiðigjöld lækkuðu á milli ára. Samanlagt hafa sjávarútvegsfyrirtæki hagnast eftir hrun um 342 milljarða króna.
Hefur hagur sjávarútvegsfyrirtækja því vænkast um 366,8 milljarða króna á örfáum árum. Þennan viðsnúning hafa eigendur nýtt í að greiða hratt niður skuldir og auka fjárfestingu í vinnslu og veiðum. Þessi gífurlega bætti hagur lendir að mestu hjá stærstu sjávarútvegsfyrirtækjunum.