Hagnaðist eiginkonan á ákvörðun sdg?

Hagfræðingurinn Ólafur Arnarson segir í nýjum pistli sínum á Hringbraut að í ljósi þess að eiginkona forsætisráðherra sé kröfuhafi í föllnu bankana verði forsætisráðhera að svara nokkrum spurningum, en svörin við þeim geti ráðið úrslitum um það hvort hann geti setið í embætti fram til kosninga.

Fyrsta spurningin er þessi: \"Hvenær og hvernig eignaðist eiginkona forsætisráðherra kröfur á föllnu bankana? Átti hún kröfur á bankana áður en þeir féllu eða er hún í hópi þeirra spákaupmanna sem keyptu kröfur á bankana eftir fall þeirra á verði sem nam á bilinu 1 - 6 prósent af nafnvirði?\"

Ólafur segir að ef eiginkonan hafi keypt kröfurnar eftir fall bankanna sé ljóst að hún hafi borgað á bilinu 5 til 30 milljónir fyrir þær þó hún hafi lýst kröfum upp á hálfan milljarð í slitabú bankanna. Þá teljist hún til \"hrægamma“, en ljóst sé að kröfur hennar séu núna a.m.k. 100 milljóna virði.

Hann minnir á að Sigmundur Davíð hafði í mörg ár talað fyrir fullkominni hörku í uppgjöri við kröfuhafa en á síðasta ári hafi hann svo stökkið viljugur á samninginn um stöðugleikaframlagið þrátt fyrir að íslenska ríkið yrði af hundruðum milljarða fyrir vikið.

Og Ólafur spyr: \"Hafði það áhrif á afstöðu forsætisráðherra gagnvart kröfuhöfum og skilyrðum uppgjörs slitabúanna að eiginkona hans er kröfuhafi og samkomulagið um stöðugleikaframlagið færði henni að líkindum tugi milljóna í aðra hönd?\"

Og enn spyr Ólafur: \"Hvernig útskýrir forsætisráðherrann, sem ætlar íslenskum almenningi að nota íslenska krónu, þau ummæli eiginkonu sinnar, að aflandsfélagið utan um eignir hennar hafi af ásettu ráði þeirra hjóna verið stofnað erlendis til að tryggja að þau hjón hefðu alltaf aðgang að fjármununum hvar sem þau væru í heiminum hverju sinni? Hví er íslenska krónan ekki nógu góð fyrir eiginkonu hans ef hún er nógu góð fyrir íslenskan almenning?\"

Hann minnir og á þversögnina að eiginkona ráðherrans hafi gefið sérstök fyrirmæli til umsjónarmanna aflandsfélags hennar að ekkert mætti fjárfesta á Íslandi fyrir hennar peninga; sem sagt að þess yrði vandlega gætt að hennar peningum yrði ekki undir nokkrum kringumstæðum skipt í krónur, sömu mynt og ráðherrann dásamar í ræðu og riti.

Hér kunni ef til vill engin lög að hafa verið brotin, bendir hann á, en segir jafnframt að stjórnmálaleiðtogar verði að gæta þess að framferði þeirra standist ekki bara lög heldur sé það líka siðlegt: \"Nú liggur fyrir að forsætisráðherra tók ákvarðanir varðandi uppgjör við kröfuhafa sem færðu kröfuhöfum hundruð milljarða á sama tíma og eiginkona hans var í hópi kröfuhafa undir dulnefni aflandsfélags síns. Stóra spurningin er hvort þetta háttalag þeirra hjóna uppfylli þau skilyrði að vera bæði löglegt og siðlegt? Svarið ræður miklu um pólitíska framtíð forsætisráðherra,\" skrifar Ólafur Arnarson á Hringbraut í dag.