Hagkerfið er traust

Umræða í framkvæmdastjórn Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (AG) staðfestir að íslenska hagkerfið er traust.

Hagvöxtur er mikill og verðbólga er lág. Afgangur af rekstri ríkissjóðs vex og skuldir ríkissjóðs lækka. Opinber hagstjórn er góð og uppgangur ferðaþjónustunnar er umtalsverður.

Þó varar AG við þeim möguleika að íslenska hagkerfið kunni að ofhitna. Aðgát skal höfð við aðgerðir á vinnumarkaði og fasateignamarkaði og huga skal að öllum lánveitingum.

AG ráðleggur aðhald í ríkisresktri og mælir með að eftirlit verði aukið í fjármálalífinu. Segir AG að þar sé lykilatriði virkt eftirlit með fjármálagreiranum og strangar kröfur eigi að gera til innlendra og erlendra fjárfesta sem fara með virkan eignahlut í íslenskum bönkum.

Fjármagnsinnflæði inn í landið beri að stýra í ljósi reynslu Íslands. Slík stýring sé einkar mikilvæg.

Staðfest í peningamálum sé lofsverð og styrking krónunnar er ekki áhyggjuefni meðan hugað sé að samkeppnishæfni Íslands. Styrkist krónan enn frekar skapast forsendur fyrir frekari lækkun stýrivaxta.

rtá

Nánar    www.imf.org  www.sedlabanki.is    www.mbl.is