Vörukarfa ASÍ hefur hækkað hjá níu verslunarkeðjum af 12 frá því í desember á síðasta ári fram til júnímánaðar í ár. Þannig hefur vörukarfan hækkað meira en sem nemur breytingu á virðisaukaskatti og afnáms sykurskatts hjá helmingi verslana.
Mesta hækkunin á þessu tímabili er hjá Iceland, Hagkaup, Víði og Kaupfélagi Skagfirðinga. Á sama tímabili lækkar vörukarfan hjá Kjarval, Krónunni og Nettó. Í heildina er það mat verðlagseftirlitsins ASÍ að breytingar á virðisaukaskatti og vörugjöldum gefi tilefni til hækkunar á verði matarkörfu meðalheimilis um u.þ.b. 1,5% en þegar innihald matarkörfunnar er skoðað nánar eru áhrifin á einstaka vöruflokka mjög misjöfn.
Mesta hækkunin er 4,8% hjá Iceland, 4,6% hjá Hagkaup, 4% hjá Viði, 3% hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, 2,5% hjá 10/11 og 2,1% hjá Samkaupum-Úrvali. Í verslunum Bónus, Samkaup-Strax og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga er hækkunin um og undir 1,5%. Lækkun á verði vörukörfunnar er um 3% hjá Kjarval, 1,1% hjá Nettó og 1% hjá Krónunni.