Hagkaup: klárir með tónik, bíðum eftir gininu

Sigurður K. Kolbeinsson stýrir þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar í kvöld. Sigurður mun heimsækja Haga í fyrsta þætti af þremur um starfsemi umsvifamikilla fyrirtækja.
Í þætti kvöldsins verður rætt við Finn Árnason forstjóra, fyrirtækið Ferskar kjötvörur verður heimsótt og þá verður sýnt viðtal við framkvæmdastjóra Hagkaupa. Þar verður m.a. komið inn á frumvarp sem bíður nú afgreiðslu Alþingis um afnám á einkasölu ÁTVR á áfengi.

Hagkaupsmenn búa sig undir að geta selt áfengi og eru komnir með tónikið klárt í hillurnar að sögn Sigurðar Kolbeinssonar, bíða bara eftir gininu.

Þá verða í þætti kvöldsins sýnd viðtöl við nokkra neytendur ÁTVR og spurt um vilja almennings til sölu á áfengi.

Atvinnulífið kl. 20.30 í kvöld á Hringbraut.