Bónus 26% ódýrari en hagkaup

Bónus var með lægsta verðið á matarkörfunni þegar verðlagseftirlit Alþýðusambands Íslands kannaði verð í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu mánudaginn 5. október.

 

Í tilkynningu frá ASÍ segir að matarkarfan hafi verið ódýrust hjá Bónus á 17.729 kr., en dýrust hjá Hagkaupum 22.322 kr. sem er 4.593 kr. verðmunur eða 26%. 

Krónan var með næst ódýrustu matarkörfuna en þar kostaði hún 18.685 kr. sem er 5% meira en í Bónus. Hjá Nettó var verðið 19.798 kr. sem gerir körfuna 12% dýrari en hjá Bónus. Iceland og Fjarðarkaup komu þar á eftir með körfu sem er 14% dýrari en hjá Bónus. Hjá verslunum Samkaupum-Úrval og Víði er karfan 18%, dýrari en ódýrasta karfan.  

Margar verslanir á svipuðu verðbili Þegar litið er nánar á þær verslanir sem eru dýrari en lágvöruverðsverslanirnar en samt með ódýrari matarkörfu en Hagkaup má sjá að verðmunurinn á milli þeirra er ekki mikill. Þetta eru verslanirnar Víðir, Samkaup-Úrval, Fjarðarkaup og Iceland.