Haf­þór ákærður fyrir stórfelld skattalagabrot og peningaþvætti

Haf­þór Helga­son, fyrrverandi fram­kvæmdar­stjóri Tölvu­teks, hefur verið á­kærður fyrir meiri háttar brot gegn skatta­lögum og fyrir peninga­þvætti í rekstri einka­hluta­fé­lagsins Tölvu­tek ehf. Markaðurinn greinir frá þessu.

Tölvu­tek hætti starf­semi þann sumarið 2019 og því haldið fram að það væri vegna „óvið­ráðan­legra á­stæða“. Fyrir­tækið var með stærstu dreifingar- og sölu­aðilum á tölvum og tölvubúnaði til einstaklinga og rak verslanir í Reykja­vík og á Akur­eyri.

Hafþóri er gefið sök að hafa ekki greitt virðis­auka­skatt upp á tæpar 14.5 milljón krónur á meðan hann var fram­kvæmdar­stjóri Tölvuteks.

Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðsins.